Í faðmi náttúrunnar

Njótið gæðastunda

á Hótel Bifröst

Sumartilboð

Golf, kvöldverður og gisting með morgunverði

Njóttu sumarsins og bókaðu golf, kvöldverðarhlaðborð og gistingu fyrir tvo í eina nótt

Vetrartilboð

Gisting, morgunverður og 3ja
rétta kvöldverður

Bókaðu einnar nætur gistingu og 3ja rétta kvöldverð fyrir tvo í vetur

Um Hótel Bifröst

Hlýlegt sveitahótel

Hótel Bifröst er hlýlegt sveitahótel í hjarta Borgarfjarðar.

Taktu hvíld frá hversdagsleikanum og njóttu þess að dvelja hjá okkur og njóta dýrindis veitinga.

Í nágrenninu er hægt að fara í léttar gönguferðir í fallegu hraunlandslagi, spila golf, fara í hjólreiðatúr eða veiða.

Herbergin

Þægileg og notaleg herbergi

Í hverju herbergi er sjónvarp, hraðsuðuketill fyrir kaffi & te, hárþurrka, frítt þráðlaust internet og baðherbergi með sturtu.

Næg bílastæði eru við hótelið.

Veitingar

Veitingastaður og bar

Njótið rómantísks kvöldverðar hjá okkur.

Við leitumst ávallt við að nota ferskt gæðahráefni við matreiðsluna svo úr verði dýrindis máltíð sem þið getið notið.

Veitingastaðurinn er opinn daglega frá kl. 18:00 til 21:00.

Hvernig væri að fá sér fordrykk fyrir kvöldverðinn? Njótið drykkja í rólegu umhverfi á barnum okkar.

Happy hour er daglega á milli kl. 16:00 og 18:00.

Umhverfisstefna

Hótel Bifröst leggur metnað sinn í að vernda umhverfið. Allir okkar verkferlar og aðgerðir eru hönnuð með það að leiðarljósi hvernig hægt er að vernda umhverfið á sjálfbæran hátt.

Við erum meðvituð um að starfsemi okkar hefur áhrif á umhverfið og vinnum ávalt með það að markmiði til að lágmarka alla sóun.

Við uppfyllum alla löggjöf og reglugerðir í umhverfismálum. Við verndum náttúruauðlindir með ábyrgri notkun orku, vatns og öðrum aðföngum.

Tveggja manna herbergi

Herbergjastærð: 29 fm.

Bjart og nútímalegt herbergi. Í herberginu er sjónvarp, hraðsuðuketill fyrir kaffi og te, frítt þráðlaust internet og baðherbergi með sturtu.

Hjónarúm eða 2 einstaklingsrúm.

Morgunverður er innifalinn.

Tveggja manna herbergi með útsýni

Herbergjastærð: 29 fm.

Bjart og nútímalegt herbergi. Í herberginu er sjónvarp, hraðsuðuketill fyrir kaffi og te, frítt þráðlaust internet og baðherbergi með sturtu.

Hjónarúm.

Morgunverður er innifalinn.

Þriggja manna herbergi

Herbergjastærð: 39 fm.

Bjart og nútímalegt herbergi. Í herberginu er sjónvarp, hraðsuðuketill fyrir kaffi og te, frítt þráðlaust internet og baðherbergi með sturtu.

Hjónarúm og eitt einstaklingsrúm eða 3 einstaklingsrúm.

Morgunverður er innifalinn.

Morgunverður innifalinn

Ljúffengur morgunverður er í boði frá kl. 7:00 til 10:00.

Veitingastaður

Veitingastaðurinn er opinn daglega frá kl. 18:00 til 21:00.

Bar

Happy Hour er daglega á milli kl. 16:00 og 18:00.

Bókaðu beint og fáðu herbergið á lægra verði!

Einstök staðsetning

Hótel Bifröst er vel staðsett fyrir ógleymanlega dvöl.

Hægt er að njóta gönguferða um hraunið, meðfram Norðurá, skóginn við Jafnaskarð eða upp að eldgígnum Grábrók.

Auðvelt er að komast að eldgígnum fyrir fólk á öllum aldri og þegar upp er komið er hægt að njóta frábærs útsýnis yfir Borgarfjörð.

Njótið dvalarinnar hjá okkur!

Komdu makanum á óvart

Bókaðu ógleymanlega dvöl hjá okkur

Hótel Bifröst

EnglishIceland